136. löggjafarþing — 66. fundur,  22. des. 2008.

fjárlög 2009.

1. mál
[10:50]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Magnús Stefánsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti minni hluta fjárlaganefndar við frumvarp til fjárlaga árið 2009. Auk mín standa að því áliti hv. þingmenn Guðjón Arnar Kristjánsson og Jón Bjarnason.

Eftir að fram hafði farið 2. umr. um frumvarp til fjárlaga 2009, með miklu magni breytingartillagna frá ríkisstjórn og meiri hluta fjárlaganefndar, voru þær samþykktar af stjórnarmeirihlutanum á Alþingi. Mikill þrýstingur hefur verið á umfjöllun um frumvarpið í nefndinni og tímapressan sem lögð er á alla aðila við vinnslu málsins er í senn óþolandi og skapar aðstæður fyrir óvönduð vinnubrögð og mistök. Eitt af því sem hefur einkennt störf fjárlaganefndar síðustu daga og vikur er bið eftir upplýsingum og tillögum frá fjármálaráðuneytinu og hefur það gert alla vinnu erfiðari en ella og takmarkað þann tíma sem nefndinni hefur verið gefinn í sínum störfum. Þetta verklag, virðulegur forseti, sýnir betur en margt annað hver staða Alþingis er gagnvart framkvæmdarvaldinu. Fjárlaganefnd fjallaði ekki um breytingartillögur við frumvarpið sem afgreiddar voru eftir 2. umr. með fulltrúum ráðuneyta fyrr en eftir að tillögurnar voru samþykktar af stjórnarmeirihlutanum á Alþingi. Það að ekki skuli hafa verið svigrúm hjá nefndinni til að fjalla um breytingartillögurnar með fulltrúum ráðuneytanna áður en nefndin afgreiddi tillögurnar til 2. umr. er einstakt og í reynd mjög gagnrýnivert. Við umfjöllun fulltrúa ráðuneytanna um tillögurnar komu fram ýmsar upplýsingar um einstaka mál sem fjárlaganefnd hefði þurft að fá fram áður en 2. umr. fór fram.

Sem dæmi má nefna að í breytingartillögunum var gert ráð fyrir tilfærslum fjárheimilda milli einstakra heilbrigðisstofnana víða um landið vegna áforma um sameiningu þeirra. Eftir að tillögurnar höfðu verið samþykktar af Alþingi og fulltrúar heilbrigðisráðuneytisins komu til fundar við nefndina komu fram þær upplýsingar að unnið væri að yfirgripsmiklum sameiningum heilbrigðisstofnana innan heilbrigðisumdæma á stórum landsvæðum. Samkvæmt upplýsingum minni hlutans hefur ekkert samráð verið haft um þessi áform við heimaaðila á viðkomandi svæðum, við sveitarstjórnir eða starfsfólk heilbrigðisstofnana. Minni hlutinn lýsir áhyggjum vegna þessara áforma varðandi þjónustustigið og öryggi í heilbrigðisþjónustu. Hér er um að ræða allt aðrar og mun umfangsmeiri sameiningar stofnana en þingmenn töldu vera við umfjöllun í fjárlaganefnd og kemur fram í greinargerð með frumvarpinu. Eftir þetta hefur komið í ljós að einstaka þingmenn hafa ekki verið með á nótunum hvað þetta varðar og þessar upplýsingar hafa komið mörgum í opna skjöldu.

Þetta er lýsandi fyrir það að þingið hefur enga möguleika á því að vita hvað er verið að samþykkja, hvaða afleiðingar það hefur og þingmenn geta almennt ekki á nokkurn hátt gert sér grein fyrir heildarmynd mála. Umfjöllun og afgreiðsla fjárlaganna er með þeim hraða og tætingslega hætti að þingmenn hafa hreinlega ekki þær forsendur sem nauðsynlegar eru til þess að setja sig inn í málið eins og vera þyrfti.

Eins og minni hlutinn hefur vakið athygli á hefur verklagið við umfjöllun og afgreiðslu frumvarpsins og breytingartillagna verið gagnrýnivert, sérstaklega vegna tímahraks og flausturslegra vinnubragða. Það eru vinnubrögð sem ekki eiga að viðgangast á Alþingi Íslendinga og eru ekki til þess fallin að auka traust og virðingu almennings fyrir löggjafarvaldinu.

Fulltrúar fjármálaráðuneytisins mættu á fund fjárlaganefndar að morgni föstudagsins 19. desember og kynntu tillögur frá ríkisstjórninni um breytingar á frumvarpinu fyrir 3. umr. á Alþingi. Fjárlaganefnd hélt tvo fundi um málið þann dag. Eftir að fjárlaganefnd hafði haft breytingartillögur ríkisstjórnarinnar til skoðunar í örfáar klukkustundir ákvað meiri hluti nefndarinnar að afgreiða frumvarpið og breytingartillögurnar úr nefndinni til 3. umr. Minni hlutinn lagðist gegn því að nefndin hætti umfjöllun um frumvarpið og breytingartillögurnar á þeim tímapunkti, enda vantaði margar mikilvægar upplýsingar og forsendur er varða frumvarpið. Auk þess er það álit minni hlutans að þingmenn hafi ekki haft tækifæri til þess að gera sér fulla grein fyrir tillögunum, afleiðingum þeirra og eðli. Minni hlutinn telur að enn þá sé ekki forsvaranlegt að Alþingi afgreiði frumvarpið svo ófullkomið og vanreifað sem það er. Það er mat minni hlutans að ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn hafi gefist upp við að vinna að gerð ábyrgra fjárlaga.

Samkvæmt breytingartillögum ríkisstjórnarinnar — eins og þær liggja nú fyrir og meiri hluti fjárlaganefndar hefur gert grein fyrir — er áætlaður halli fjárlaga 153 milljarðar kr. á rekstrargrunni. Fjármálaráðuneytið gerir fyrirvara um niðurstöður um vaxtakostnað vegna erlendra innlánsreikninga bankanna, upplýsingar þar um liggja ekki fyrir. Sú aðferð að samþykkja fjárlög með þessu stóra gati er ekki til þess fallin að skapa hagstjórninni trúverðugleika.

Í breytingartillögum meiri hlutans við tekjuáætlun felast auknar tekjur sem nema alls um 6,7 milljörðum kr. á rekstrargrunni. Meðal tillagna um auknar tekjur má nefna að gert er ráð fyrir að seldar verði fasteignir erlendis sem skili tekjum að fjárhæð 3 milljarðar kr., en þar er um að ræða sölu á sendiherrabústöðum í New York, Washington, London og Ósló. Þess ber að geta að gert er ráð fyrir að leigja þurfi húsnæði eða kaupa ódýrari eignir í staðinn, þannig að hér er a.m.k. að hluta til um að ræða sýnda veiði en ekki gefna varðandi fjárhagslegan ávinning ríkissjóðs.

Í nefndaráliti minni hlutans fyrir 2. umr. um frumvarpið voru gerðar alvarlegar athugasemdir við að allar forsendur tekjuáætlunar vantaði. Þrátt fyrir formlegar og ítrekaðar óskir þar um höfðu þær upplýsingar ekki borist. Eftir að Alþingi hafði samþykkt tekjuáætlun eins og hún lá fyrir við 2. umr. barst fjárlaganefnd bréf frá fjármálaráðuneytinu, dags. 17. desember, þar sem gerð er ítarleg grein fyrir forsendum tekjuáætlunar eins og hún var afgreidd eftir 2. umr. Minni hlutinn gagnrýnir harðlega að þessar forsendur hafi ekki legið fyrir í fjárlaganefnd áður en nefndin afgreiddi tekjuáætlunina til 2. umr. og áður en stjórnarmeirihlutinn samþykkti hana. Þar sem þessar upplýsingar höfðu ekki borist fyrr liggur fyrir að stjórnarmeirihlutinn hafði ekki eðlilegar forsendur til að leggja mat á tekjuáætlunina áður en hún var samþykkt á Alþingi. Þessi vinnubrögð stjórnarmeirihlutans eru lýsandi fyrir það sem á sér stað á Alþingi um þessar mundir og eru langt frá því að geta talist ábyrg og eðlileg. Minni hlutinn gagnrýnir harðlega þessi vinnubrögð og vísar til ábyrgðar stjórnarmeirihlutans á þeim.

Fjárlaganefndinni barst álit frá efnahags- og skattanefnd varðandi tekjuáætlunina. Þar kom fram að það er samdóma álit bæði meiri hluta og minni hluta hennar að mjög mikil óvissa sé ríkjandi og að tekjuáætlun sé alls ekki raunhæf. Minni hlutinn tekur undir þetta og er þeirrar skoðunar að tekjuáætlunin geti ekki talist raunhæf og hefur minni hlutinn áhyggjur af því að í áætluninni séu tekjur ríkissjóðs ofmetnar. Það á fyrst og fremst við um tekjuskatta einstaklinga og lögaðila og er vísað til þess að mjög alvarlegt ástand er fram undan á vinnumarkaði og í atvinnustarfseminni og samkvæmt spám er því miður gert ráð fyrir auknu atvinnuleysi á næsta ári og meiri samdrætti í atvinnustarfseminni þegar líður á árið.

Í breytingartillögum meiri hlutans í fjárlaganefnd við gjaldahliðina koma fram nokkrar tillögur um aðgerðir til að lækka útgjöld og nema þær alls tæplega 3 milljörðum kr. Þessar tillögur fela fyrst og fremst í sér niðurskurð á stofnkostnaði og framkvæmdum.

Á móti breytingartillögum til niðurskurðar útgjöldum eru tillögur um aukin útgjöld að fjárhæð alls 3,5 milljarðar kr. Loks eru fjölmargar sundurliðaðar tillögur til aukinna útgjalda að fjárhæð 13,1 milljarður kr. vegna uppreiknings á áhrifum launa, verðlags og gengis krónunnar. Í frumvarpi til fjárlaga var almennt miðað við 5,4% verðlagshækkanir en endurskoðuð spá gerir ráð fyrir að verðbólga milli ára verði 14,3%. Í frumvarpinu var gengið út frá þeirri forsendu að gengisvísitala krónunnar væri óbreytt frá stöðu 3. september sl. en endurskoðuð áætlun gerir ráð fyrir mun hærri gengisvísitölu eða 200 stigum.

Samkvæmt ákvæðum frumvarps um ráðstafanir í ríkisfjármálum er gert ráð fyrir að hækkun bóta almannatrygginga verði óbreytt miðað við forsendur í frumvarpinu, þ.e. um 5,4%, það sama gildi um framlög samkvæmt búvörusamningum. Minni hlutinn bendir á að þetta leiði til þess að viðkomandi greiðslur munu rýrna að raunvirði eða sem nemur mismuninum á raunverulegum verðlagsbreytingum og 5,4% áætlun fjárlaga og þar með skila lægri rauntekjum til þjóðfélagshópa — þ.e. þeirra sem þiggja tekjur frá almannatryggingum og þeirra sem þiggja tekjur samkvæmt búvörusamningum — og minnkandi kaupmætti.

Það liggur í augum uppi að vegna falls bankakerfisins og allra þeirra gríðarlegu skuldbindinga sem ríkissjóður þarf að gangast undir þess vegna verður vaxtakostnaður ríkissjóðs mjög mikill á næstu árum. Fjármálaráðuneytið lagði fyrir fjárlaganefnd vaxtaáætlun ríkissjóðs fyrir árið 2009. Samkvæmt þeirri áætlun er gert ráð fyrir að vaxtakostnaður verði alls 86,9 milljarðar kr. Vaxtagjöld vegna lána ríkissjóðs eru áætluð 41 milljarður kr. en voru áætluð 34,7 milljarðar kr. í frumvarpi til fjárlaga 2009. Vaxtakostnaður sem tengist falli bankakerfisins er áætlaður yfir 45 milljarðar kr. Samkvæmt þessu er áætlaður vaxtakostnaður 21,6% af áætluðum tekjum ríkissjóðs 2009. Þessi útgjaldaliður, vaxtakostnaður, mun auðsjáanlega verða mjög íþyngjandi fyrir ríkissjóð á allra næstu árum. Athygli vekur að ekki er gert ráð fyrir vaxtakostnaði vegna væntanlegra skuldbindinga ríkissjóðs vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Hollandi og Bretlandi. Mikil óvissa er um hve mikill sá kostnaður verður. Hér er um að ræða gríðarlega háar fjárhæðir sem ríkissjóður þarf væntanlega að standa skil á, þó að við vonum auðvitað öll að þessar fjárhæðir verði sem lægstar.

Á fundi fjárlaganefndar 19. desember lögðu fulltrúar fjármálaráðuneytisins fram minnisblað, dags. 18. desember, um sérstök framlög vegna falls bankanna. Þar er fjallað um lán ríkissjóðs 2008, endurfjármögnun og fjármögnunarþörf. Samkvæmt því yfirliti sem kemur fram í þessu minnisblaði er um að ræða vel yfir 800 milljarða kr. fjármögnunarþörf en þar er hins vegar ekki gert ráð fyrir fjármögnun hallareksturs ríkissjóðs.

Við í minni hluta fjárlaganefndar vekjum sérstaka athygli á þessum fjárhæðum en um er að ræða hluta af þeim miklu skuldbindingum sem almenningur í landinu þarf að standa undir vegna falls bankanna. Það er ljóst að áhrifin af því munu vara í mörg ár og bitna á komandi kynslóðum sem á engan hátt bera ábyrgð á því sem gerst hefur.

Samkvæmt því sem fram hefur komið hjá yfirmanni sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi mun kostnaðurinn við að endurreisa bankakerfið og endurfjármagna Seðlabankann verða á bilinu 85–90% af landsframleiðslu sem er mjög hátt hlutfall í öllum samanburði. Hins vegar eru um 60% af þeim kostnaði innlend og þess vegna hvílir endurreisnin mest á því að taka til heima fyrir. Ef miðað er við að landsframleiðsla sé nálægt 1.300 milljörðum kr. gæti þessi kostnaður legið í kringum 1.000 milljarða kr.

Í breytingartillögum meiri hluta fjárlaganefndar eru allmargar tillögur er varða 6. gr. frumvarpsins, sem er heimildargrein. Þar kennir ýmissa grasa. Minni hlutinn beinir því til fjármálaráðherra og fjárlaganefndar að sú regla verði tekin upp að ef fjárútlát samkvæmt þessari heimildargrein stefni í að fara umfram tiltekna fjárhæð beri að leggja fram mat á því hvaða kostnað viðkomandi heimildir munu fela í sér. (Gripið fram í.) Hv. þm. Gunnar Svavarsson skýtur inn spurningu um hvaða fjárhæð það ætti að vera — ég tel að það sé eitthvað sem þurfi að komast að niðurstöðu um en ég er ekki með tillögurnar hér. Fyrst og fremst erum við í minni hlutanum að leggja áherslu á að slíkt mat verði gert og grundvallaratriðið er auðvitað að fjárlaganefndin, sem fjallar um þessar heimildargreinar, hafi einhverja vitneskju um hversu mikið umfang í fjárheimildum er um að ræða varðandi einstakar tillögur. Við teljum að þetta feli í sér aukinn aga í ríkisfjármálum, fyrir utan að fjárlaganefnd og Alþingi þurfa að vera algjörlega með á nótunum um hvað einstaka heimildir í heimildargreininni koma til með að fela í sér í ríkisútgjöldum. Ég geri ráð fyrir því að menn séu sammála þessu og við munum ræða það síðar.

Hæstv. forseti. Minni hlutinn ítrekar að rekstur heilbrigðis- og öldrunarstofnana hefur verið með uppsöfnuðum halla en að hluta til er tekið á því í fjáraukalögum 2008. Hins vegar munu þessar stofnanir hefja rekstrarárið 2009 með talsverðan uppsafnaðan halla auk þess sem fjárheimildir þeirra eru skornar niður í þessu frumvarpi. Minni hlutinn lýsir miklum áhyggjum af þessu ráðslagi ríkisstjórnarinnar og spáir því að þessar stofnanir verði fljótlega komnar í mikinn rekstrarvanda ef miðað er við óbreytt þjónustustig. Minni hlutinn óttast að ráðist verði í að draga úr þjónustu til að mæta þessum rekstrarvanda en það kæmi mjög illa niður á velferðarþjónustunni og öllum þeim sem þurfa á henni að halda

Minni hlutinn vekur sérstaka athygli á því sem hér hefur verið rætt áður í tengslum við önnur mál, það sem við köllum innan gæsalappa „nýbreytni“, sem er það að sjúklingar sem þurfa á þjónustu sjúkrahúsa að halda greiði fyrir það gjald. Við vekjum sérstaka athygli á því, eða ég sérstaklega sem talsmaður, að þarna er Sjálfstæðisflokkurinn að ná fram sínu stefnumiði með mjög dyggum stuðningi Samfylkingarinnar. Hér er um að ræða nýjan sjúklingaskatt sem að sjálfsögðu kemur illa niður á þeim sem þurfa á þessari þjónustu að halda.

Vegna þess mikla niðurskurðar ríkisútgjalda sem birtist holt og bolt um allt kerfið telur minni hlutinn að afleiðingarnar verði þær að margir einstaklingar muni missa störf sín. Það muni leiða til þess að álag á atvinnuleysistryggingarnar muni aukast með auknum útgjöldum. Minni hlutinn vísar allri ábyrgð af því á ríkisstjórnina og stjórnarmeirihlutann á Alþingi. Hætt er við því að þessar aðgerðir muni leiða af sér meiri ríkisútgjöld en niðurskurðinum nemur.

Við í minni hluta fjárlaganefndar ítrekum að við teljum að það sé ekki unnt að vinna að trúverðugu fjárlagafrumvarpi eða fjárlögum með þeim hætti sem hér er viðhafður. Ef fjárlögin verða samþykkt, sem ég geri nú ráð fyrir að verði, út frá þessum hæpnu forsendum sem liggja til grundvallar og við höfum fjallað um ítarlega muni þau ekki gefa rétta mynd af því sem fram undan er né heldur geti fjárlögin verið raunhæft og sanngjarnt stjórntæki ríkisfjármála eins og þeim er ætlað að vera og þar með hagstjórnartæki.

Við vekjum athygli á því, hæstv. forseti, að eftirlitskerfi ríkisins hefur ekki staðið undir sínu hlutverki. Í því sambandi má benda á að fjárlög hafa ekki staðist árum saman og frávikagreining fjármálaráðuneytisins er ómarkviss. Minni hlutinn bendir á að Ríkisendurskoðun vinnur skýrslur um framkvæmd fjárlaga fyrir hvern ársfjórðung en til þessa hefur ekki verið unnin slík skýrsla fyrir síðasta ársfjórðung liðinna ára. Minni hlutinn bendir á að ríkisreikningur kemur allt of seint fram ár hvert í stað þess að vera til staðar skömmu eftir áramót eins og almennt gengur og gerist í atvinnulífinu þannig að Alþingi geti betur og í tíma fylgst með því sem gerist.

Við bentum á við 2. umr. að við teljum að orðið geti uppi sú staða að rekstrarhalli ríkissjóðs næstu fjögur árin geti numið samtals tekjum eins fjárlagaárs. Það hefur í raun og veru ekkert komið fram sem dregur úr ótta okkar í minni hlutanum við að skuldastaða ríkissjóðs geti á einhverjum tímapunkti numið vel á annað þúsund milljörðum kr. og að á móti þeim skuldum standi óvissar eignir í þrotabúum gömlu bankanna sem hafa ekki verið verðmetnar opinberlega.

Við leggjum mikla áherslu á það hlutverk Alþingis og fjárlaganefndar að hafa eftirlit með framkvæmd fjárlaga. Það er okkar mat að við þær aðstæður sem uppi eru og fram undan eru sé þetta hlutverk fjárlaganefndar og Alþingis mikilvægara en áður.

Minni hlutinn leggur áherslu á að Alþingi fjalli um frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2009 á vorþingi komandi. Eins og minni hlutinn hefur ítrekað bent á vantar mikilvægar upplýsingar og forsendur fjárlaganna. Þegar líður fram á árið 2009 munu margir hlutir skýrast smám saman, t.d. um væntanlegar skuldbindingar ríkissjóðs varðandi uppgjör á innstæðureikningum Icesave. Þá hefur komið fram að endurskoðuð þjóðhagsáætlun fjármálaráðuneytisins verður birt í janúar. Samkvæmt samkomulaginu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn mun sjóðurinn meta framvindu mála ársfjórðungslega. Miklir óvissuþættir eru varðandi fall bankanna og verðmæti eigna þeirra. Allt þetta hefur það sín áhrif á forsendur fjárlaga og er líklegt að þau mál skýrist með einhverjum hætti þegar líður á næsta ár.

Hæstv. forseti. Í ljósi alls þessa gerir minni hlutinn tillögu í sínu nefndaráliti. Hún hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Fjárlög fyrir árið 2009 skulu koma til endurskoðunar á Alþingi með sérstöku frumvarpi til fjáraukalaga sem lagt verði fyrir Alþingi eigi síðar en 1. mars 2009.“

Við höfum gert ítarlega grein fyrir því af hverju við teljum að þetta eigi að gera og reyndar höfum við heyrt á stjórnarliðum, mörgum hv. þingmönnum, að þeir eru sama sinnis. Við erum þeirrar skoðunar að það sé nauðsynlegt að þingið fjalli um þessa tillögu og samþykki hana helst, þannig að þetta verði gert og segi ég það í ljósi reynslunnar.

Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Ég vil að lokum taka undir með formanni fjárlaganefndar, hv. þm. Gunnari Svavarssyni, og þakka fyrir samstarfið. Ég hef ekki verið lengi í fjárlaganefnd að þessu sinni, bara örfáar vikur, en samstarfið hefur verið gott. Ég þakka sérstaklega formanni og varaformanni nefndarinnar fyrir ágæta stjórn við mjög erfiðar aðstæður. Þeir eru ekki — svo ég segi það nú og það komi beint frá hjarta mínu — öfundsverðir að standa í því að stýra þessum málum við þessar aðstæður, ekki síst vegna þess hve krumla framkvæmdarvaldsins umlykur hér allt sem lýtur að þingstörfum. Það höfum við svo sannarlega orðið vör við í störfum fjárlaganefndar Alþingis á þessum síðustu dögum.