139. löggjafarþing — 76. fundur,  22. feb. 2011.

göngubrú yfir Markarfljót.

432. mál
[19:07]
Horfa

Flm. (Róbert Marshall) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um göngubrú yfir Markarfljót. Í henni felst að Alþingi álykti að fela ríkisstjórninni að láta smíða göngubrú yfir Markarfljót við Húsadal. Með tillögu þessari er lagt til að gerð verði fyrrgreind göngubrú í þeim tilgangi að auðvelda og bæta aðgengi að hinni fögru náttúru Þórsmerkursvæðisins.

Á svæðið er aðeins hægt að komast á sérútbúnum bílum eftir torfærum slóðum. Þrátt fyrir þessar takmarkanir er talið að um 75–100 þúsund ferðamenn komi þangað árlega. Í nýafstöðnu eldgosi í Eyjafjallajökli lokaðist leiðin inn í Þórsmörk og það skapaði hættu fyrir ferðafólk á svæðinu auk þess sem ferðaþjónustuaðilar töpuðu viðskiptum meðan lokað var. Leiðin í Þórsmörk er almennt hættuleg og lokast oft á hverju sumri. Mjög alvarleg slys hafa orðið í ám á leiðinni. Þessar tíðu lokanir og hin alvarlegu slys hafa leitt af sér þá hugmynd að gera örugga leið í Þórsmörk með göngubrú yfir Markarfljót til móts við Húsadal.

Á síðustu mánuðum hafa möguleikar á brúarsmíði verið skoðaðir og verðtilboða leitað. Mögulegur ávinningur af brúarsmíðinni hefur einnig verið kannaður og leiddi könnunin í ljós að slík brú mundi fyrst og fremst auka mjög öryggi ferðamanna. Slík brú opnaði leið inn í Þórsmörk bæði vetur og sumar fyrir þá sem ekki eiga sérútbúna fjallajeppa, en þá yrði ekið inn Fljótshlíð og inn fyrir Þórólfsfell. Göngubrú á Markarfljóti mundi einnig opna fyrir nýjar gönguleiðir, svo sem Þórsmörk–Tindfjöll, Einhyrningsflatir–Emstrur og Markarfljótsgljúfraleið. Þar með mundi opnast ný vídd í ferðaþjónustu sem skapaði ný störf á svæðinu. Mætti og leggja rafstreng yfir hina nýju brú sem gerði það mögulegt að rafvæða skála ferðaþjónustuaðila í Þórsmörk.

Ljóst er að Þórsmerkursvæðið er og verður áfram með alvinsælustu útivistarsvæðum landsins á næstu árum, enda er áhugi bæði innlendra og erlendra ferðamanna mikill á að skoða eldstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi og sjá ummerkin eftir öskugosið úr toppi Eyjafjallajökuls. Því er afar brýnt að bæta aðgengi og öryggi ferðamanna eins vel og hægt er.

Áætlanir Vegagerðarinnar gera ráð fyrir að göngubrú yfir Markarfljót á þessum stað kosti um 50 millj. kr. Flutningsmenn tillögunnar hvetja til þess að gerð göngubrúarinnar verði unnin í samstarfi við samtökin Vini Þórsmerkur og í samræmi við hugmyndir þeirra um staðsetningu og fleira, en að samtökunum standa hagsmunaaðilar á svæðinu.

Virðulegur forseti. Nýverið var í fréttum að Ferðamálaráð hefði ákveðið að styrkja þessa framkvæmd um u.þ.b. 4 millj. kr. en betur má ef duga skal. Það er þó fagnaðarefni að verkefnið skuli vera komið af stað.

Ástæðan fyrir því að í þessari tillögu er gert ráð fyrir að ríkisstjórninni allri sé falið að fara í þetta verk, sem sumir mundu kannski ætla að væri svolítið mikið í lagt, er að hér er um að ræða mál sem nær til nokkurra ólíkra ráðuneyta. Það nær yfir ferðamálin, sem eru vistuð í iðnaðarráðuneytinu, og er jafnframt um öryggismál sem þessu tengist og samgöngumál. Við sem flytjum þetta mál töldum eðlilegt að því yrði vísað til ríkisstjórnarinnar. Það er ekki stórt, en skiptir miklu máli. Þarna er á ferðinni ein mesta perla íslenskrar náttúru og það er mikilvægt út frá öryggi að fjölga leiðum þangað og þaðan en ekki síður að opna þessa perlu fyrir öllum almenningi og gera fólki sem er ekki á sérútbúnum bifreiðum eða jeppum kleift að heimsækja þá útivistarparadís sem Þórsmörk vissulega er.