140. löggjafarþing — 15. fundur, 1. nóv. 2011.
Varamenn taka þingsæti.
Forseta láðist að geta þess í upphafi fundar að eins og tilkynnt var á vef þingsins 24. október sl. barst bréf frá Atla Gíslasyni, 4. þm. Suðurk., um að hann geti ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur af persónulegum ástæðum. Sama dag tók sæti á Alþingi hv. þm. Arndís Soffía Sigurðardóttir. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.