140. löggjafarþing — 25. fundur,  17. nóv. 2011.

vegaframkvæmdir á Suðvesturlandi.

[10:20]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Þetta mál hefur náttúrlega verið á forræði innanríkisráðherra sem fer með vegamál. Ég mun auðvitað ræða við innanríkisráðherra um þær umræður sem hér hafa farið fram, en málið er fyrst og fremst á hans forræði og það er þá hans að koma þessu af stað aftur ef hann telur forsendu til þess og ég er alveg tilbúin að meta það með honum hvort ástæða sé til að reyna það.