145. löggjafarþing — 132. fundur,  15. ág. 2016.

munnleg skýrsla forsætisráðherra um stöðu þjóðmála, ein umr.

[15:58]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Hvers vegna var þetta kjörtímabil stytt? Við leggjum nú af stað inn í síðustu daga þessa kjörtímabils töluvert fyrr en áætlað var. Ástæðan er sú fordæmalausa staða sem upp kom í kjölfar þess að Panama-skjölunum var lekið og í ljós kom að fjöldi Íslendinga, þar á meðal æðstu embættismenn, hafði nýtt sér skattaskjól sem notuð eru til að koma peningum undan sameiginlegum sjóðum landsmanna.

Það varð þjóðinni áfall að forsætisráðherra landsins skyldi vera flæktur í málið. Viðtalið fræga og fréttirnar í kjölfarið voru óbærilega vandræðalegar. Þjóðin skammaðist sín fyrir umræður á erlendum fréttastöðvum um spillta ráðherra á Íslandi. Hæstv. fjármálaráðherra og innanríkisráðherra þurftu síðan að útskýra hvers vegna þeirra nöfn voru líka í skjölunum. Það var tilfinning fólks um svik og spillingu sem kallaði fram fjölmennustu mótmæli í sögu Íslands og krafan var: Kosningar strax.

Forsætisráðherrann sagði af sér og núverandi hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra báðu þjóðina um að sætta sig við að kláruð yrðu ákveðin mál fyrir kosningar en kjörtímabilið yrði stytt um eitt þing. Þegar spurt var um kjördag var svarið: Það fer eftir því hvernig stjórnarandstaðan hagar sér. Þetta svar er og hefur ekki verið boðlegt og ríkisstjórninni til minnkunar. Þrátt fyrir þá hótun og þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi ekki fengist til að segja kjósendum hvenær yrði kosið fyrr en nú, fimm mánuðum seinna, vann stjórnarandstaðan þétt við hlið hennar á Alþingi síðastliðið vor við að klára mikilvæg mál. Það samstarf gekk vel og vert er að rifja það upp nú þegar við höldum inn í þetta stutta sumarþing.

Herra forseti. Sannleikurinn er sá að megn óánægja ríkir með sitjandi ríkisstjórn á fleiri en einu sviði. Heilbrigðisþjónustan líður fyrir fjárskort og það gerir menntakerfið líka. Kjör aldraðra og öryrkja hafa dregist aftur úr lágmarkslaunum. Grunur hefur vaknað um vond vinnubrögð, svo sem í Borgunarmálinu, og sala ríkiseigna tortryggð. Farið var í leiðréttingu á húsnæðislánum sem gagnaðist ríkum allra best. Þunginn í ferðamannastraumnum eykst sífellt án þess að gripið sé til neinna aðgerða og ríkissjóður hefur orðið af tugum milljarða króna undanfarin þrjú ár vegna lækkaðra veiðigjalda og skatta á þá sem mest eiga.

Allt þetta bitnar á venjulegu fólki sem er á lágum eða meðallaunum og það er engin þolinmæði lengur fyrir slíkum vinnubrögðum. Það er þó ekki allt kolsvart og staða ríkisfjármála er að mörgu leyti góð. Með réttum áherslum og góðri forgangsröðun verður hægt að byggja upp opinberu þjónustuna og styrkja innviði landsins. Nú er líka góð von um að ný ríkisstjórn taki við stjórnartaumunum eftir kosningar.

Það kemur satt að segja á óvart að sjá kosningaloforð stjórnarflokkanna sem birtast í áætlun þeirra í ríkisfjármálum til næstu fimm ára. Fyrir fram hefði maður búist við digrum loforðapakka í hinum ýmsu uppbyggingarverkefnum en flokkarnir hafa ákveðið að sýna sitt rétta andlit og gera ekki ráð fyrir meiri peningum inn í heilbrigðiskerfið eða til háskólanna. Ekkert meira í vaxta- og barnabætur og nánast ekkert í uppbyggingu vegakerfisins. Þegar spurt er um hvernig skuli þá byggja upp Ísland er svar þeirra einfalt: Einkarekstur. Einkarekin sjúkrahús, heilsugæsla, skólar, vegir og flugvellir.

Herra forseti. Ríkisstjórnin mun ekki klára kjörtímabil sitt vegna þess að hún er rúin trausti. Kosið verður að nýju 29. október og við í Samfylkingunni tölum fyrir hugsjónum jafnaðarstefnunnar og nýrri stjórnarskrá, fyrir öflugu velferðarsamfélagi, fyrir réttlátri skiptingu þjóðarkökunnar, jafnrétti til náms, gæðaheilbrigðisþjónustu sem allir geta notið og mannsæmandi kjörum á öllum stigum lífsins. Góður möguleiki er á því að betri ríkisstjórn taki við eftir nokkrar vikur og það er afar gleðilegt.