148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

lengd þingfundar.

[16:32]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Herra forseti. Við erum hér enn á sama stað og áður. Því miður er ekkert samráð, ekkert samkomulag. Hér skortir algerlega verkstjórn. Herra forseti, ábyrgðin er mikil. Ég ítreka þó og bendi á að forseti hefur dagskrárvaldið. Ég samþykki ekki lengri þingfund í kvöld, sem er vegna þess að mál er komið inn á okkar borð af óljósum ástæðum, vil ég leyfa mér að segja, meðan öðrum mikilvægari málum er haldið í gíslingu.