149. löggjafarþing — 82. fundur,  21. mars 2019.

sjúkratryggingar.

644. mál
[11:17]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, vegna nýrra laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, en þau lög voru, eins og kunnugt er, samþykkt á Alþingi síðastliðið sumar.

Lög þessi eru í daglegu tali nefnd persónuverndarlögin og mun ég nýta mér það til styttingar í máli mínu hér eftir.

Frumvarpinu er ætlað að gera nauðsynlegar breytingar á ákvæðum laga um sjúkratryggingar sem falla undir málefnasvið heilbrigðisráðuneytis til að tryggja að vinnsla persónuupplýsinga á grundvelli hlutaðeigandi laga samræmist ákvæðum nýju persónuverndarlaganna. Gera verður greinarmun á þeim áhrifum sem nýju persónuverndarlögin kunna að hafa í för með sér, svo sem á störf opinberra stofnana, og þeim áhrifum sem efni frumvarpsins kann að hafa í för með sér á störf Sjúkratrygginga Íslands.

Þá er rétt að árétta að frumvarpinu er ekki ætlað að hafa í för með sér breytingar hvað varðar þá þjónustu sem Sjúkratryggingum Íslands er ætlað að veita.

Virðulegur forseti. Undir málefnasvið heilbrigðisráðuneytisins falla ýmis lög sem varða mikilvæg réttindi og skyldur almennra borgara. Á grundvelli þeirra laga þarf oft og tíðum að vinna með persónuupplýsingar einstaklinga sem geta verið viðkvæmar, svo sem upplýsingar um heilsufar þeirra. Á það m.a. við í þeim tilvikum þegar kanna þarf hvort skilyrði fyrir ýmiss konar aðstoð séu uppfyllt.

Mikilvægt er að vandað sé til verka þegar unnið er með slíkar upplýsingar, auk þess sem mikilvægt er að sú vinna sé í samræmi við nýju persónuverndarlögin. Er það ástæða þess að frumvarp þetta er lagt fram nú. Um er að ræða breytingar á einum lagabálki, þ.e. lögum um sjúkratryggingar, en þessar breytingar eru nauðsynlegar í kjölfar gildistöku nýju persónuverndarlaganna.

Sjúkratryggingar Íslands starfa á grundvelli laganna og er gert ráð fyrir að stofnunin afli aðeins þeirra upplýsinga sem nauðsynlegar geta talist svo hún geti sinnt sínu lögbundna hlutverki hverju sinni. Jafnframt er í frumvarpinu lögð áhersla á að áður en upplýsingaöflun á sér stað hafi hlutaðeigandi einstaklingar fengið upplýsingar um fyrirhugaða upplýsingasöfnun eins og hægt er hverju sinni til að tryggja sanngjarna og gegnsæja vinnslu gagnvart einstaklingunum.

Í frumvarpinu er þannig gert ráð fyrir því að skýrð verði nánar sú lagastoð sem fyrir er í hlutaðeigandi lögum fyrir vinnslu upplýsinga sem nauðsynlegar þykja svo Sjúkratryggingar Íslands geti sinnt lögbundnum skyldum sínum.

Þess ber að geta að þótt umræddar breytingar þyki nauðsynlegar í kjölfar gildistöku nýju persónuverndarlaganna er ekki gert ráð fyrir því að vísað sé sérstaklega til þeirra laga í þeim breytingum sem frumvarpið gerir ráð fyrir á hlutaðeigandi lögum. Ástæðan er sú að ákvæði nýju persónuverndarlaganna gilda almennt um alla vinnslu persónuupplýsinga og er því gert ráð fyrir að öll vinnsla persónuupplýsinga á grundvelli þeirra laga sem frumvarpið gerir ráð fyrir að verði breytt þurfi áfram að vera í samræmi við meginreglur persónuverndarlaga, eins og verið hefur þrátt fyrir efni frumvarpsins.

Virðulegur forseti. Þetta frumvarp var í grunninn unnið í framhaldi af nýjum persónuverndarlögum en við vinnslu frumvarpsins voru skoðaðir aðrir lagabálkar sem heyra undir heilbrigðisráðherra og var niðurstaðan sú að þeir samræmist nýju persónuverndarlögunum í grundvallaratriðum. Þó er ástæða til að skoða framkvæmd stofnana og vinnslu á persónuupplýsingum betur og mögulega skýra vinnsluheimildir sérstaklega og laga ítarlega í kjölfarið.

Því er ráðgert að leggja fram annað frumvarp af þeim meiði á næsta þingi. Vinna við slíkt frumvarp er nú þegar hafin í samráði við stofnanir ráðuneytisins.

Að lokum legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar að lokinni þessari umræðu.