149. löggjafarþing — 119. fundur,  7. júní 2019.

efnalög.

759. mál
[14:21]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Ari Trausti Guðmundsson) (Vg):

Herra forseti. Ég geri grein fyrir nefndaráliti frá hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Nefndin hefur fjallað um þetta mál og fengið á sinn fund sex gesti og enn fremur bárust nefndinni sex umsagnir. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á efnalögum sem miða að því að bæta löggjöfina, gera hana skýrari og aðgengilegri og að tryggja lagastoð fyrir innleiðingu EES-gerða og svokallaðs Minamata-samnings um að draga úr notkun kvikasilfurs frá 2013.

Í nefndarálitinu eru nokkrir kaflar. Sá fyrsti fjallar um reynslu af efnalögum og þar segir: Fyrir nefndinni og í umsögnum kom fram almenn ánægja með reynsluna af efnalögum. Framkvæmd laganna hefur þó leitt í ljós að nokkur ákvæði þarfnast breytinga. Má sem dæmi nefna ákvæði um tilkynningarskyldu markaðssetningar eiturefna, plöntuverndarvara og útrýmingarefna sem aðeins eru ætluð til notkunar í atvinnuskyni. Þetta ákvæði er talið stangast á við frjálst flæði vöru samkvæmt EES-samningnum. Þá eru einnig tiltekin hugtök laganna sem eru skilgreind á annan hátt en í EES-gerðunum sem þeim er ætlað að innleiða. Einnig eru lagðar til breytingar sem miða að einföldun fyrir leyfishafa notendaleyfa. Lagt er til að gildistími notendaleyfa sé lengdur úr fimm árum í átta ár. Að mati Umhverfisstofnunar er ekki þörf fyrir svo tíða endurnýjun sem fimm ár eru. Að mati nefndarinnar eru framangreind atriði öll til bóta auk annarra sem ekki eru rakin hér.

Í kafla um stöðvun innflutnings segir m.a.: Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið þess efnis að ákveðin lagaleg óvissa gæti ríkt um stöðvun tollstjóra á tollafgreiðsla á grundvelli tilmæla Umhverfisstofnunar, samanber 2. mgr. 20. gr. laganna. Fram kom fyrir nefndinni enn fremur að til stöðvunar tollafgreiðslu getur komið vegna ýmissa atriða en í framkvæmdinni byggist ákvörðunin þó yfirleitt á því að leyfi skortir frá annarri stofnun. Sú framkvæmd að stöðva tollafgreiðslu felur ekki í sér efnislega afstöðu til leyfisskyldu, heldur er stöðvun hverju sinni framkvæmd á grundvelli efnislegrar ákvörðunar annars stjórnvalds, í þessu tilviki Umhverfisstofnunar. Þessu til viðbótar er í 68. gr. efnalaga mælt fyrir um heimild til að kæra til ráðherra stjórnvaldsákvarðanir sem teknar eru á grundvelli laganna. Að mati nefndarinnar verður því synjun tollafgreiðslu vegna tilmæla Umhverfisstofnunar kærð til umhverfis- og auðlindaráðuneytis.

Í kafla um öryggisblöð á íslensku kemur fram að í 30. gr. efnalaga sé mælt fyrir um að svokölluð öryggisblöð sem birgjar láta fylgja við afhendingu efnis til notkunar í atvinnuskyni skuli vera á íslensku. Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að í áformum um breytingu á efnalögum og drögum að frumvarpinu, sem kynnt voru á samráðsgátt stjórnvalda, hafi verið lagt til að fallið yrði frá þessari kröfu. Lagt var til að öryggisblöðin gætu verið á íslensku, ensku eða Norðurlandamáli öðru en finnsku.

Fram kemur í greinargerðinni að tillagan hafi mætt andstöðu flestra umsagnaraðila. Nefndin ræddi þessa kröfu. Fram komu sömu sjónarmið og að framan hafa verið rakin. Auk þess var bent á að um væri að ræða mjög tæknileg gögn sem notuð væru af fagfólki. Þegar þau væru þýdd á íslensku kynni það að flækja þau þar sem notuð væru nöfn á efnum í efnablöndum. Öryggisblöðin gætu tapað öryggisgildi sínu við það.

Í ljósi framangreindra röksemda telur nefndin veigamikil rök hníga að því að fallið verði frá því að gera það að lagaskyldu að þýða öryggisblöð á íslensku. Fyrir nefndinni kom fram að þetta væru gögn sem fagfólk ynni með og styddist alla jafna við erlenda gagnagrunna. Öryggisblöð varða því afmarkaðan hóp manna sem með sanngirni má ætlast til að skilji hið erlenda mál vegna menntunar sinnar eða annarrar sérhæfingar. Öryggisblöðin fara í mjög litlum mæli til almennings. Nefndin leggur því til breytingu þess efnis að öryggisblöð skuli vera valkvætt á íslensku eða ensku.

Loks er hér kafli sem heitir fræðsla fyrir heilbrigðisfulltrúa. Fyrir nefndinni var vakin athygli á hlutverki Umhverfisstofnunar sem lýtur að fræðslu og leiðbeiningum fyrir heilbrigðisfulltrúa. Í greinargerð frumvarpsins er gerð grein fyrir athugasemdum Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um fræðsluhlutverk Umhverfisstofnunar. Þar var bent á að mikilvægt væri að halda betur utan um efnavörueftirlit en verið hefur. Eftir að stærsti hluti eftirlitsins fluttist til Umhverfisstofnunar væri orðið erfitt að viðhalda nauðsynlegri sérþekkingu á efnavörueftirliti hjá heilbrigðisfulltrúum. Kallað var eftir fræðslu og leiðbeiningum um með hvaða hætti væri ætlast til að tiltekið eftirlit væri framkvæmt, upplýsingagjöf til Umhverfisstofnunar o.fl.

Í greinargerðinni bregst ráðuneytið við framangreindum athugasemdum. Rekur það ákvæði 51. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir sem leggur þá skyldu á herðar Umhverfisstofnun að sinna yfirumsjón með heilbrigðiseftirliti og tryggja samræmingu þess þannig að framkvæmdin sé eins á landinu öllu. Fræðsla fyrir heilbrigðisfulltrúa sé því hlutverk sem Umhverfisstofnun hafi og sinni nú þegar en mögulega getur stofnunin sinnt því enn markvissar.

Nefndin tekur undir framangreind sjónarmið. Að mati hennar er mikilvægt að þessu verkefni verði gefið aukið vægi í starfsemi stofnunarinnar. Nefndin beinir því til ráðuneytisins að fylgja þessu eftir.

Herra forseti. Til viðbótar við framangreint leggur nefndin til að gerðar verði nokkrar breytingar lagatæknilegs eðlis. Nefndin telur frumvarpið til bóta og til þess fallið að styrkja framkvæmd efnalaga.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali sem ég fer ekki hér nánar yfir.

Bergþór Ólason og Karl Gauti Hjaltason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Rósa Björk Brynjólfsdóttir var enn fremur fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álitið í samræmi við 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis. Þá er skemmst frá því að segja að undir þetta álit skrifa Jón Gunnarsson, formaður nefndarinnar, Ari Trausti Guðmundsson framsögumaður, Hanna Katrín Friðriksson, Helga Vala Helgadóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Vilhjálmur Árnason.

Herra forseti. Ég hef lokið máli mínu.