150. löggjafarþing — 129. fundur,  29. júní 2020.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

720. mál
[17:23]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ari Trausti Guðmundsson) (Vg):

Herra forseti. Þetta nefndarálit er um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1990, og eru EFS-reglur og fjalla um plastvörur. Við fengum 17 gesti, sjö umsagnir og eina skýrslu. Í nefndarálitinu stendur hér:

„Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, til samræmis við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/904 frá 5. júní 2019 um að draga úr áhrifum tiltekinna plastvara á umhverfið.

Með frumvarpinu er stefnt að því að draga úr áhrifum af notkun plasts á umhverfið og heilsu fólks, vekja neytendur til umhugsunar um neyslu og umhverfisáhrif plasts, draga úr notkun einnota plastvara og styðja við notkun fjölnota vara. Meginefni frumvarpsins snýr að banni við að setja á markað tilteknar einnota plastvörur og að afhenda einnota bolla og matarílát án endurgjalds, kröfum um gerð og samsetningu tiltekinna einnota drykkjaríláta, að komið verði á opinberu eftirliti með eftirfylgni lagaákvæða um plastvörur og að sett verði lagastoð fyrir reglugerðarákvæði um plastvörur. […]

Er því haldið til haga að eitt mikilvægra verkefna samfélagsins felst í að takmarka notkun plasts og samhliða því að auka og bæta endurnýtingu þess með sem umhverfisvænstri endurvinnslu. Einnota plastvörur eru meðal þeirra vara sem eiga sér umhverfisvænni staðgönguvörur, henta illa til endurvinnslu og mynda stærsta hluta plastúrgangs sem fyrnist í hafi og stöðuvötnum, eða á víðavangi og byggðu landi.“

Það er rétt að taka það fram varðandi formhlið málsins með innleiðingu Evrópureglugerða að meiri hlutinn áréttar að reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála eiga lagastoð í lögum nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, og er þeim m.a. ætlað að tryggja að frágangur lagafrumvarpa sem innleiða reglur sem byggjast á ESB-gerðum séu með tilteknum og samræmdum hætti. Mikilvægt er að gerður sé greinarmunur á þeim tilvikum þar sem verið er að lögfesta efnisreglur Evróputilskipunar líkt og við á í þessu tilfelli og því að gerð sé innleidd. Í báðum tilfellum myndast lagastoð fyrir viðkomandi gerð en einungis í því síðara er um eiginlega innleiðingu að ræða í skilningi EES-réttar.

Með vísan til þess að tilskipun 2019/904 hefur ekki verið tekin upp í EES-samninginn komu fram sjónarmið fyrir nefndinni um að óþarft væri að lögfesta efnisreglur tilskipunarinnar á þessum tímapunkti þar sem tilskipunin væri enn til skoðunar á vettvangi EFS og EFTA-ríkja og ekki hafi skapast þjóðréttarleg skylda til innleiðingar.

Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu þykir mikilvægt að hefja lögfestingu efnisreglna tilskipunarinnar til að auka fyrirsjáanleika og gefa atvinnulífi og almenningi svigrúm til að aðlagast nýjum reglum áður en þær taka gildi.

Flest ákvæði tilskipunarinnar koma til framkvæmda 3. júlí 2021 en frekari gildistaka fer fram á árunum 2023 og 2024. Frumvarpið gengur ekki lengra en tilskipunin gerir og því munu íslensk fyrirtæki þurfa að uppfylla sömu kröfur og fyrirtæki annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu. Ef til þess kemur að tilskipuninni verði breytt á síðari stigum, t.d. að því er gildistökuákvæði hennar varðar, munu íslensk stjórnvöld venju samkvæmt hefja vinnu við að aðlaga löggjöf að þeim breytingum.

Fyrir nefndinni voru gerðar athugasemdir við að með frumvarpinu væri aðeins hluti efnisreglna tilskipunar (ESB) 2019/904 lögfestur en ekki ákvæði hennar um framlengda ábyrgð framleiðenda á plastvörum. Brýnt væri að ákvæði laga um notkun og meðferð plasts næðu til ábyrgðar framleiðenda á plastvörum.

Meiri hlutinn tekur undir það en bendir jafnframt á að umrædd ákvæði eiga ekki að koma til framkvæmda fyrr en á árunum 2023 og 2024. Skynsamlegt þykir að gefa stjórnvöldum og atvinnulífi aukið svigrúm til undirbúnings fyrir lögfestingu þeirra. Það fer jafnframt vel á því að efnisákvæði tilskipunarinnar um framlengda framleiðendaábyrgð verði lögfest á sama tíma og ákvæði tilskipunar (ESB) 2018/851 um úrgang til úrgangskerfa sem byggjast á framlengdri framleiðendaábyrgð. Samkvæmt upplýsingum frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu verður frumvarp til innleiðingar á tilskipun ESB frá 2018, þessari nr. 851, lagt fram á haustþingi 2020.

Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið um að með frumvarpinu væru lagðar íþyngjandi kröfur á framleiðendur drykkjarvara um lágmarkshluta innihalds á endurunnu plasti í einnota drykkjarvörum úr plasti án þess að sambærilegar kröfur væru lagðar á framleiðendur annarra vara sem nota plastefni í umbúðir.

Með frumvarpinu er ákvæðum tilskipunar (ESB) 2019/904 fylgt að öllu leyti hvað varðar þær tilteknu plastvörur sem það tekur til enda fyrirsjáanlegt að ákvæði tilskipunarinnar verði innleidd í íslenskan rétt án breytinga. Það er mjög mikilvægt að þetta komi fram. Með frumvarpinu eru stigin skref í þá átt að setja lagaákvæði sem auka eiga eftirspurn eftir endurunnu plasti til framleiðslu á vörum.

Meiri hlutinn tekur undir að mikilvægt sé að auka endurvinnslu plasts hér á landi og beinir því til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins að skoða aðgerðir í þá veru við innleiðingu á næstu skrefum í hringrásarhagkerfinu. Þá telur meiri hlutinn mikilvægt að þess verði gætt að sambærilegar kröfur gildi um endurvinnsluhæfni umbúða úr blöndu af plasti og pappír eða öðrum efnum og gilda um allar einnota plastumbúðir fyrir drykkjarvörur og annars konar vörur til að koma til móts við athugasemdir um plastvörur sem eru búnar til úr fleiri en einu efni og er erfitt að endurvinna.

Fyrir nefndinni féllu orð um að það þyrfti að setja sérlög um plastvörur. Meiri hlutinn vísar til greinargerðar með frumvarpinu varðandi ástæður þess að lagt er til að efnisákvæði tilskipunar (ESB) 2019/904 verði lögfest með breytingum á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Nefndin hefur fengið það staðfest hjá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu að fyrir dyrum standi heildarendurskoðun á nefndum lögum. Mun þá gefast tækifæri til að leggja mat á nauðsyn þess að skipta lögunum upp og t.d. semja sérlög um plast og plastvörur. Meiri hlutinn fagnar þeirri vinnu sem fram fer í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og lýtur að því að leggja fram heildstæða löggjöf um meðhöndlun úrgangs á landsvísu. Er sérstaklega hvatt til þess að ráðist verði í fyrirhugaða endurskoðun sem allra fyrst og þannig búið um að förgun, flokkun og endurvinnsla hvers kyns plastvara verði til fyrirmyndar og í samræmi við bestu staðla og ýtrustu umhverfiskröfur.

Við meðferð málsins fyrir nefndinni var fundið að því að frumvarpið tæki ekki til endurvinnslu sem væri mikilvægur hlekkur í hringrásarhagkerfinu. Koma þyrfti upp flokkunarkerfi fyrir umbúðir samhliða bættri merkingu plastvara þar sem auðveldara muni þá reynast að flokka þær og endurvinna. Meiri hlutinn tekur undir að þarna fari brýn og verðug verkefni en bendir engu að síður á að tilskipun (ESB) 2019/904 er afmörkuð við leiðir til að takmarka notkun einnota plastvara og tekur ekki til alls úrgangskerfisins. Meiri hlutinn lítur svo á að margvíslegar plastvörur og íhlutir úr plastefnum muni áfram fylgja samfélögum um allan heim. Þeim mun mikilvægara er að meðhöndla efnið sem hráefni eftir að notkun plastvara lýkur. Er því tekið undir þau sjónarmið að samhliða takmörkun á notkun einnota plastvara sé afar mikilvægt að þær, eins og aðrar plastvörur, séu endurunnar sem allra mest með eins hagkvæmum og umhverfisvænum hætti og hægt er.

Meiri hlutinn leggur áherslu á að bann við einnota plastvörum og fjárhagslegir hvatar til að takmarka sölu og útbreiðslu slíkra vara eru aðeins einn af mörgum áföngum í bættri notkun og meðferð plasts. Í því samhengi og með vísan til fyrirhugaðrar heildarendurskoðunar laga á málefnasviðinu hvetur meiri hlutinn til aukins samráðs við hagaðila og sérfræðinga í plastvöruframleiðslu, endurvinnslu og vöruþróun þegar kemur að áframhaldandi vinnu við mótun úrgangsstefnu og endurvinnslu í anda hringrásarhagkerfisins.

Örfá orð um staðgönguvörur. Fyrir nefndinni voru til umræðu þær staðgönguvörur sem búast má við að komi á markað eftir því sem einnota plastvörum fækkar. Bent var á að staðgönguvörur væru ekki einvörðungu margnota heldur einnig vörur úr öðru efni en plasti, t.d. pappa og við. Þá væru þær jafnan mun dýrari í innkaupum en plastvörur.

Meiri hlutinn bendir á að samkvæmt nýjustu aðgengilegu gögnum var hlutfall endurunninna plastumbúða sem félli til hér á landi á árunum 2016–2018 að meðaltali 43%. Til samanburðar var endurvinnsluhlutfall pappírs- og pappaumbúða á sama tímabili tæp 87%. Frumvarpinu er því fyrst og fremst ætlað að stuðla að meiri notkun margnota vara í stað einnota plastvara. Margvíslegar upplýsingar um gagnsemi staðgönguvara, hæfi þeirra til endurvinnslu og mismunandi kolefnis- og vistspor hafa komið fram. Alþjóðlegt þróunar- og vísindastarf er grunnur þess að framleiðsla umræddra staðgönguvara, jafnt sem annarra vara sem geta komið í stað plastvara, verði ásættanleg. Því fleygir fram með aukinni umhverfisvitund og rannsóknum.

Gerðar voru athugasemdir við ákvæði c-liðar 5. gr. frumvarpsins um að einungis sé heimilt að setja á markað einnota drykkjarílát með tappa eða loki úr plasti ef tappinn eða lokið er áfast ílátinu. Ætla megi að með lögfestingu krafna um áfasta plasttappa aukist plast í umbúðum sem leiði til aukins framleiðslukostnaðar og stærra kolefnisfótspors drykkjarvara.

Að teknu tilliti til þeirra ábendinga sem nefndinni bárust við umfjöllun málsins og að höfðu samráði við umhverfis- og auðlindaráðuneytið leggur meiri hlutinn til að ákvæðið verði fellt brott úr frumvarpinu. Þess í stað verði ákvæðið fært í frumvarp um lögfestingu ákvæða fyrrnefndrar tilskipunar (ESB) 2018/851 sem stefnt er að að leggja fram á haustþingi 2020. Með því að seinka lögfestingu þessa ákvæðis gefst tækifæri til frekari undirbúnings og eftirfylgni með þeirri framþróun sem ætla má að verði á næstu mánuðum hvað áfasta tappa og lok varðar.

Þetta var meginefni nefndarálits meiri hlutans og breytingartillögur eru alls sex. Ég ætla ekki að telja þær upp. Þetta er mestan partinn smávægilegar breytingar til skýringar en þó það að 1. mgr. c-liðar 5. gr. frumvarpsins fellur brott.

Þá er komið að því að gera grein fyrir afgreiðslunni. Hv. þm. Bergþór Ólason var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson var fjarverandi þar líka en ritar undir álit þetta með fyrirvara samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis. Hv. þm. Björn Leví Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur álitinu. Þannig að undir það skrifa hér með hv. þingmenn Ari Trausti Guðmundsson, sem er hér framsögumaður, Bryndís Haraldsdóttir, Guðjón S. Brjánsson, Hanna Katrín Friðriksson, með fyrirvara, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Líneik Anna Sævarsdóttir og Vilhjálmur Árnason.

Herra forseti. Ég hef lokið máli mínu.