150. löggjafarþing — 137. fundur,  3. sept. 2020.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

968. mál
[20:51]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við í Viðreisn getum ekki stutt þessar breytingar á fjármálastefnunni. Við teljum of lítið gert og of seint, það vanti snerpu í viðbrögð við þeirri kreppu sem við glímum við núna. Það er ekki komið nægilega fljótt og myndarlega til móts við heimilin og fyrirtækin í landinu. Þess vegna getum við ekki stutt þetta mál.