151. löggjafarþing — 49. fundur,  27. jan. 2021.

störf þingsins.

[15:10]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Á Jafnréttisdögum 1.–5. febrúar standa Rannsóknasetur í fötlunarfræðum, Kvennahreyfing Öryrkjabandalags Íslands og Landssamtökin Þroskahjálp fyrir málstofu um ofbeldi gegn fötluðum konum. Fræðafólk, fulltrúar samtaka fatlaðs fólks og fulltrúar stjórnvalda verða kallaðir saman til samstarfs um þekkingu og reynslu til að þróa leiðir til að hindra ofbeldi gegn fötluðum konum.

Alþjóðlegar rannsóknir sýna að fatlaðar konur eru mun líklegri en aðrar konur til að vera beittar ofbeldi. Þrátt fyrir það, og þrátt fyrir að um sé að ræða alvarleg mannréttindabrot, er ofbeldi gegn fötluðum konum enn falið og ósýnilegt og sjaldan brugðist við því af hálfu yfirvalda. Rannsóknir sýna að ofbeldi gegn konum og börnum hefur aukist í Covid-19 faraldrinum, einnig á Íslandi. Hér á landi hafa stjórnvöld brugðist við þessu með því að nýta nýja tækni við að þróa 112 vefgátt til vitundarvakningar og sem tæki til að takast á við og hindra ofbeldið.

Í greinargerð ríkislögreglustjóra um ofbeldi gegn fötluðum á Íslandi kemur fram skelfilegt birtingarform ofbeldis sem grasserar gagnvart fötluðu fólki og þar segir m.a. orðrétt, með leyfi forseta:

„Íslenskar sem erlendar rannsóknir leiða í ljós að fatlað fólk er í sérstökum áhættuhópi sem þolendur ofbeldis. Kannanir sýna einnig að meiri líkur eru á að fatlað fólk verði fyrir ofbeldi en þeir sem ófatlaðir teljast. Einkum eru ungar konur sem glíma við fötlun líklegri til að verða fyrir kynferðisbroti. Höfundar erlendrar rannsóknar segja börn sem glíma við þroskahömlun 4,6 sinnum líklegri en ófötluð börn til að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi.“

Og síðar segir:

„Ofbeldi gegn fötluðum getur þannig tekið á sig margar birtingarmyndir.“

Og ein birtingarmyndin er sú að Alþingi hefur ekki lögfest samning Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks.

Í alþjóðlegri skýrslu segir að fötlun sé eðlilegur hluti mannlegs lífs, að næstum allir verði fyrir tímabundinni eða varanlegri fötlun á lífsleiðinni. Fatlað fólk á Íslandi á rétt á því að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði lögfestur og það strax. Hvar er frumvarpið frá þessari ríkisstjórn sem átti að vera komið hingað inn í desember sl.? Er það ekki ofbeldi gagnvart fötluðu fólki að leggja það ekki fram?