152. löggjafarþing — 8. fundur,  9. des. 2021.

vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefndar.

[13:02]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Með bréfum, dagsettum 6. desember 2021, hefur forseti óskað eftir því, samanber 8. tölulið 1. mgr. 13. gr. þingskapa, við fjárlaganefnd að hún fjalli um skýrslur Ríkisendurskoðunar sem bera heitin Framkvæmd fjárlaga fyrstu níu mánuði ársins 2021 annars vegar og Endurskoðun ríkisreiknings vegna ársins 2020 hins vegar.