152. löggjafarþing — 10. fundur,  14. des. 2021.

störf þingsins.

[13:17]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. 702 börn. Það er fjöldinn sem bíður eftir greiningu og þjónustu hjá Þroska- og hegðunarstöð á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þetta eru bara tölur frá því núna í desember sem ég fékk þaðan áðan. 702 börn. Þetta eru börn sem glíma við ADHD, börn með einhverfu, kvíða, hegðunarvanda, og mörg hafa þurft að bíða í meira en ár eftir að komast að, sum í tvö ár. Þetta eru tvöfalt fleiri börn en voru á biðlista hjá stofnuninni þegar ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók við árið 2017. Þau bíða lengur og lengur, sem er afleiðingin af því að starfsmannafjöldi og fjárveitingar eru ekki í nokkru einasta samræmi við hina raunverulegu þörf eftir þjónustu. Þannig er staðan og það vitum við. Hið sama er uppi á teningnum hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins þar sem er tekið á móti börnum með alvarlegar þroskaraskanir. Þar voru á fjórða hundrað börn á biðlista fyrr á þessu ári og þau þurftu líka að bíða í allt að tvö ár eftir að fá greiningu. Tilvitnun hefst, með leyfi forseta:

„Markmiðum um að bæta snemmtækan stuðning verður ekki náð án þess að biðlistum verði útrýmt en slíkt átak krefst aukinna fjárveitinga til Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.“

Þetta sagði umboðsmaður barna nýlega í erindi til Alþingis en ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur er greinilega ósammála þessu því í fjárlagafrumvarpi næsta árs er beinlínis gert ráð fyrir niðurskurði á fjárveitingum til stofnunarinnar og svo áframhaldandi niðurskurði árið 2023 og 2024.

Herra forseti. Við þingmenn eigum ekkert erindi í jólafrí fyrr en við höfum gefið þessum 1.000 börnum og fjölskyldum þeirra skýr fyrirheit um að á þessu verði tekið strax og það birtist þá í fjárlögum með skýrum hætti. Þessi börn eru búin að bíða alveg nógu lengi.