152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030.

418. mál
[21:47]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir þessa athugasemd hér og ábendingu um einmitt notendur og mikilvægi aðkomu þeirra. Ég held að hv. þingmaður þurfi ekki að velkjast í vafa um hug minn til þess og ég mun leggja áherslu á það og við höfum rætt það, ég og hæstv. félagsmálaráðherra, í þennan hóp, að fulltrúar þessa hóps verði með og að þau samtök sem eru umbjóðendur þessa hóps taki þátt í þessari vinnu. Það er bara afar mikilvægt og ég þakka góða ábendingu.