Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 17. fundur,  17. okt. 2022.

staðfesting kosningar.

[15:02]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg):

Hæstv. forseti. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur fengið til meðferðar tilkynningu landskjörstjórnar um kosningu Ingu Bjarkar Margrétar Bjarnadóttur sem 2. varaþingmanns Samfylkingarinnar í efnahagslögsögu Íslands í Suðvesturkjördæmi. Nefndin hefur fundað til að fjalla um kosninguna og kjörgengi hennar og mælir nefndin einróma með staðfestingu kosningar Ingu Bjarkar Margrétar Bjarnadóttur.