154. löggjafarþing — 2. fundur,  13. sept. 2023.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[19:43]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Kæru landsmenn. Kæru þingmenn sem mér sýnist koma vel undan sumri, tilbúnir í viðburðaríkan vetur þrátt fyrir ýmis deiluefni á sviði stjórnmálanna.

Efst á baugi Alþingis í vetur verða efnahagsmál og kjarasamningar enda hefur blásið á móti undanfarin misseri; fyrst heimsfaraldur með tilheyrandi efnahagslegum afleiðingum og síðan hraður viðsnúningur hér innan lands samhliða stríðsátökum í Evrópu með meðfylgjandi verðbólgu og vaxtahækkunum. Þjóðin hefur siglt mótbyrinn af staðfestu og reynst vandanum vaxin. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa borið árangur og hagvísar vísa nú í rétta átt. Afkoma ríkissjóðs hefur batnað langt umfram bjartsýnustu spár en gert er ráð fyrir að frumjöfnuður ríkissjóðs í ár verði um 100 milljörðum betri en áætlað var við samþykkt fjárlaga 2023 í lok síðasta árs. Undirliggjandi verðbólga stefnir nú niður á við og við munum sjá verðbólgumælingar ganga niður. Þetta mun skapa forsendur fyrir lækkun vaxta sem eru farnir að bíta verulega, bæði almenning og atvinnulíf.

Til að styðja við peningastefnuna hefur ríkisstjórnin tekið forystu og gripið til margvíslegra aðgerða. Sýnt gott fordæmi með því að miða launahækkanir æðstu ráðamanna við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Varið kaupmátt öryrkja með viðbótarhækkunum á örorkulífeyri almannatrygginga. Til að veita viðnám gegn þenslu og verðbólgu verður viðbótartekjuskattur lagður á fyrirtækin í landinu og ráðist í umtalsvert aðhald í ríkisrekstri, en grunnþjónustan verður þó varin og styrkt þar sem þörf er á. Allar þessar aðgerðir og margar fleiri styðja við okkar sameiginlega markmið um að tryggja vaxandi velsæld með því að ná niður verðbólgu og vöxtum.

Miklu mun skipta að aðilar vinnumarkaðarins fái svigrúm til að ná saman um farsæla kjarasamninga til að tryggja að lífskjör hér á Íslandi verði áfram með því besta sem þekkist. Þar munu stjórnvöld hér eftir sem hingað til greiða fyrir samningum eins og hægt er. Miklu skiptir þar að áætlanir stjórnvalda í húsnæðismálum gangi eftir sem og þátttaka sveitarfélaganna í framkvæmd rammasamkomulags um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis til að mæta fyrirsjáanlegri þörf allra hópa fyrir öruggt húsnæði. Í vor tilkynnti ríkisstjórnin um tvöföldun framlaga til að tryggja framboð á hagkvæmu húsnæði en sú aukning gerir það að verkum að unnt verður að byggja 2.000 almennar íbúðir til langtímaleigu fyrir tekjulægri heimili á næstu tveimur árum í stað 1.000 áður. Þá verður unnið að bættri réttarstöðu leigjenda á grundvelli tillagna starfshóps stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Auk þess er til skoðunar hvernig megi betur tryggja samræmi og sanngirni í beinum húsnæðisstuðningi við leigjendur. Öruggt húsnæði er lykill að lífsgæðum og því eitt af forgangsmálum ríkisstjórnarinnar.

Frá upphafi hefur ríkisstjórnin einnig lagt áherslu á bætt kjör barnafjölskyldna. Úttekt á stöðu ungbarnafjölskyldna stendur nú yfir á vegum þjóðhagsráðs og verða niðurstöðurnar nýttar til að bæta kjör þeirra. Þegar hafa stór skref verið stigin til að efla barnabótakerfið og hefur foreldrum sem eiga rétt á barnabótum fjölgað um 10.000 á fimm árum.

Í forsætisráðuneytinu vinnum við nú að aðgerðaáætlun til að draga úr fátækt í kjölfar skýrslu sem ég lét vinna að beiðni Alþingis. Í þeirri skýrslu kom fram að dregið hefur úr fátækt undanfarna tvo áratugi og staðan á Íslandi er með því besta sem þekkist. Það er gott að okkur hefur miðað áfram og það gefur okkur trú á verkefnin. En meðaltöl og langtímaþróun leysa ekki neyð þeirra sem enn þá eiga vart til hnífs og skeiðar þegar líður á mánuðinn. Sama gildir um áhyggjur foreldra sem ekki geta veitt börnum sínum þátttöku í íþróttum og tómstundum vegna fjárskorts. Fátækt er enn til staðar og þar standa einstæðir foreldrar, örorkulífeyrisþegar og innflytjendur verst. Það kallar á áframhaldandi markvissar aðgerðir á grundvelli greininga og gagna.

Árangur í baráttunni gegn fátækt er lykilatriði þegar horft er til almennrar velsældar. Heildarendurskoðun og umbætur á örorkulífeyriskerfi almannatrygginga, sem nú er unnið að í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, vega þungt í þessu samhengi. Fyrstu skrefin voru tekin síðasta vetur, m.a. með því að tvöfalda frítekjumark atvinnutekna örorkulífeyrisþega eftir 14 ára kyrrstöðu. Nýtt kerfi með frekari umbótum verður að fullu innleitt í áföngum á næstu árum og gerir fjármálaáætlun ráð fyrir 16,5 milljarða kr. auknum framlögum á ársgrundvelli þegar það hefur verið innleitt að fullu. Þegar þessar breytingar hafa náð fram að ganga verða þær eitt stærsta skref sem lengi hefur verið tekið af hálfu Alþingis til að draga úr fátækt, og okkur öllum til sóma.

Kæru landsmenn. Von er á uppfærðri aðgerðaáætlun í loftslagsmálum frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu um áramót. Þar munu birtast endurskoðaðar og nýjar aðgerðir til að ná metnaðarfullum markmiðum okkar í loftslagsmálum. Von er á frumvarpi frá umhverfisráðherra um vindorku. Þar skiptir mestu að unnið verði faglega, gætt að náttúruvernd, tryggt að arðurinn af auðlindinni renni til þjóðarinnar á sama tíma og við nýtum fjölbreytta möguleika til grænnar orkuöflunar.

Kynntar hafa verið niðurstöður umfangsmikillar vinnu um endurskoðun fiskveiðistjórnarkerfisins sem byggja á víðtæku samráði og opnu samtali um íslenskan sjávarútveg. Í efnislegum niðurstöðum eru ýmis tíðindi. Ég nefni tvennt; annars vegar að meginreglur umhverfisréttar verði innleiddar í fiskveiðistjórnarkerfið og hitt, að viðmið um heildaraflahlutdeild og tengda aðila verði einfölduð og skýrð og gagnsæi í eignarhaldi og rekstri sjávarútvegsfyrirtækja aukið, til að mynda með skráningu viðskipta með aflaheimildir í opinbera gagnagrunna. Hvort tveggja væru risastór framfaramál og við munum fá að fást við þau á þingvetrinum.

Fram undan er fyrsta starfsár nýs Vísinda- og nýsköpunarráðs sem verður stjórnvöldum til ráðgjafar varðandi stefnumótun í þeim málum. Við höfum séð stórfelldan vöxt í þekkingarmiðaðri starfsemi í atvinnulífinu á Íslandi á undanförnum árum. Þekkingariðnaðurinn er orðinn ný undirstöðustoð í íslensku atvinnulífi. Fjárfestingar í nýsköpunarfyrirtækjum hafa aukist og voru aldrei meiri en árið 2022. Ríkisstjórnin boðar aukin framlög til háskólanna í fjármálaáætlun sinni, enda eru þeir undirstöðurnar undir allan þennan vöxt.

Íbúar höfuðborgarsvæðisins og þau sem þangað eiga leið sjá nú nýjan Landspítala rjúka upp, tímamótaframkvæmd sem mun gerbreyta starfsaðstæðum þeirra sem vinna á þessari grundvallarstofnun íslenska heilbrigðiskerfisins. Á sama tíma höfum við aukið fjárframlög til heilbrigðisþjónustu, hvort sem er í krónum talið eða sem hlutfall af landsframleiðslu og dregið úr beinni greiðsluþátttöku sjúklinga. Samið hefur verið við sérfræðilækna, styrkir til tannréttinga nær þrefaldaðir. Unnið er samkvæmt áætlun um mönnun heilbrigðiskerfisins sem er risastórt viðfangsefni, ekki eingöngu á Íslandi heldur í öllum þeim löndum sem við berum okkur saman við.

Ráðherranefnd um íslenska tungu tók til starfa í nóvember síðastliðnum og menningar- og viðskiptaráðherra mun leggja fyrir þingið tillögu um eflingu íslenskrar tungu. Við stöndum á tímamótum. Ensk máláhrif eru alltumlykjandi í málumhverfi okkar. Íslenskan er áskorun fyrir innflytjendur sem aldrei hafa verið fleiri. Um leið hefur atorka stjórnvalda í góðri samvinnu við ýmis samtök og einstaklinga skilað árangri. En betur má ef duga skal. Við höfum skyldum að gegna til að varðveita íslenska tungu og gera öðrum kleift að njóta hennar, ekki bara gagnvart okkur sjálfum heldur heiminum öllum sem yrði töluvert fátækari ef enn ein þjóðtungan hyrfi af sviðinu.

Herra forseti. Í veröld allri hafa dregist upp skarpar átakalínur undanfarin misseri og ár. Á sama tíma og loftslagsváin hefur skapað neyðarástand víða um heim hefur átökum í heiminum fjölgað og oftar en ekki snúast þau átök um grundvallarréttindi fólks. Á vettvangi alþjóðastofnana er tekist á um mannréttindi sem við héldum að við hefðum þegar barist fyrir, eins og sjálfsákvörðunarrétt kvenna yfir eigin líkama eða réttindi hinsegin fólks. Allt sýnir þetta að mannréttindi eru ekki sjálfgefin eins og sést best á því dapurlega bakslagi sem við sjáum í umræðu um hinsegin og kynsegin fólk. Tekist er á um gildi þeirrar samfélagsgerðar sem við höfum byggt upp; lýðræði, frelsi, mannréttindi og réttarríkið. Víða er vegið að sjálfstæði dómstóla og grafið undan löggjafarvaldinu. Ísland á að beita sér og tala hátt og skýrt fyrir þessum gildum á alþjóðavettvangi. Ísland tók í fyrsta sinn sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna árið 2019 og beitti sér af krafti. Við bjóðum okkur nú fram á nýjan leik til setu þar á árunum 2025–2027.

Áfram munum við berjast fyrir jafnrétti kynjanna hér heima og að heiman. Strax í haust mun ég leggja fyrir þingið frumvarp um mannréttindastofnun, sem er forsenda þess að unnt verði að lögfesta sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem er svo löngu tímabært. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)

Kæru landsmenn. Það er alltaf krefjandi viðfangsefni að vera í ríkisstjórn, ekki síður óvenjulegri ríkisstjórn. Óvenjulegri vegna þess að það er sjaldgæft að ólíkir flokkar taki sig saman um að byggja brýr á milli gagnstæðra póla með velsæld fólksins í landinu að leiðarljósi. En ekki gleyma því að það gerir líka hlutverk stjórnarandstöðu óvenjulegt og krefjandi, enda er hún ekki síður innbyrðis ólík en ríkisstjórnin.

Auðvitað ætti það ekki að vera framandi fyrir okkur hér í þessum sal því að okkar daglega líf og samskipti snúast að miklu leyti um nákvæmlega þetta, að kunna ekki bara að hlusta á ólík sjónarmið heldur virða þau og leggja ýmislegt á sig til að geta komist að sameiginlegri niðurstöðu í þágu heildarinnar, allt frá því hvað á að vera í kvöldmatinn, hver skjátíminn á að vera og hvaða verkefnum á að forgangsraða í húsfélaginu yfir í það hvernig við aukum velsæld í samfélaginu öllu og náum árangri í loftslagsmálum. Öll slík verkefni byggja á því að skilgreina markmið sem eru samfélaginu til hagsbóta og finna svo leiðir að þeim, og það getur vissulega kallað á málamiðlanir um leiðina og hversu hratt markmiðum verður náð.

Núverandi ríkisstjórn hefur tekist á við mörg stórmál með þessum hætti með góðum árangri. Það stærsta, sögulega séð, verður án efa heimsfaraldurinn en einnig má nefna breytingar á skattkerfinu, stuðning við kjarasamninga og kaupmáttaraukningu, rammaáætlun og fleira mætti telja. Ég fagna því ef við getum unnið þverpólitískt í fleiri málum. Ég fagna því til að mynda að sjá málefnalegt frumkvæði Viðreisnar að því að eiga þverpólitískt samtal um málefni útlendinga. Ég held að slík vinnubrögð geti fært samfélaginu öllu árangur, ekki síst í viðkvæmum málaflokki á borð við þann sem ég nefni hér.

Þau eru mörg, mikilvægu málin sem við þurfum að takast á við, og ég hef enn trú á því að besta pólitíkin sé að vinna að sátt um lausnirnar frekar en pólitík sem snýst um að herða pólana og færa þá lengra í sundur. Ég er viss um að við sem byggjum þetta land erum langflest sammála um það. Ég er ekki aðdáandi þeirra stjórnmálamanna sem telja sér til tekna að semja aldrei, líta á hverja sátt sem uppgjöf og telja deilur sér til tekna fremur en sátt og samvinnu. Það er nefnilega fleira sem sameinar okkur í þessu landi en sem sundrar.

Þar með er ekki sagt að pólitísk deilumál eigi að víkja til hliðar og lognmollan ein að ríkja. En það er sitt hvað, pólitík sem annars vegar byggir á skautun, virðingarleysi fyrir pólitískum andstæðingum og popúlisma og hins vegar pólitík sem tekst á við þá staðreynd að fólkið í þessu landi hefur ólíkar skoðanir og reynir að leiða fram skynsamlega niðurstöðu mála sem meginþorri þjóðarinnar getur sætt sig við.

Verkefni okkar allra hér í þessum sal, ríkisstjórnarinnar og Alþingis alls eru ljós og skýr. Meginviðfangsefnið fram undan er að ná niður verðbólgu og skapa forsendur til að unnt verði að lækka vexti og byggja ofan á þann góða árangur sem náðst hefur í efnahags- og velferðarmálum þrátt fyrir áhlaup síðustu ára. Við erum á réttri leið og nú þarf að tryggja að batinn sem er fram undan skili sér inn í íslenskt samfélag, inn í íslenskt efnahagslíf og inn á hvert heimili. Það er verkefni okkar og frá því munum við ekki hvika. Ábatann munum við sjá í vetur, svo fremi sem okkur auðnist að vinna saman að stóru markmiðunum; heill og velferð landsmanna allra. — Takk fyrir.