154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

704. mál
[20:30]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hv. þingheimur. Sem gamall Grindvíkingur þá rennur mér blóðið til skyldunnar. Ég er stoltur yfir því að þetta skuli vera komið á þetta stig og vonast endilega til þess að það verði haldið áfram og það verði öllum hjálpað sem hægt er að hjálpa í Grindavík. Ég er með kveðju til Grindvíkinga frá Ásmundi Einarssyni og hann óskar ykkur velfarnaðar. Takk.