16.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1195 í B-deild Alþingistíðinda. (1635)

25. mál, skipun læknishéraða o. fl.

Forseti (H. Þ.):

Eg álít réttast að vísa þessu máli til 2. umr., eins og það liggur fyrir í heild sinni með viðaukatill. á þskj. 126 og 174, sem ekki eru í sérstöku frumvarpsformi, eins og frumv. um Norðfjarðarhérað (á þskj. 157). Hér verður því rætt um það, sem stendur í sambandi við frumv. á þskj. 106, og það, sem nefndin, er skipuð var upphaflega í það mál, hefir tekið til meðferðar.