09.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1460 í B-deild Alþingistíðinda. (1990)
55. mál, dánarskýrslur
Ráðherrann (H. H.):
Mér skilst að hinn háttv. þm. Mýr. (J. S.) hafi aðallega það á móti frv., að það leggi mönnum ekki nógu miklar skyldur á herðar. En það hefir þótt hér á þingi til þessa alt of mikill kostnaður að heimta læknisvottorð um hvert einasta dauðsfall. Þær skýrslur, sem hér er farið fram á eru ódýrar, og eru þó mikið betri en ekki neitt.
Gagnvart þeirri mótbáru gegn frv., að læknar búi í svo fáum sóknum, er þess að gæta, að sóknir þær, er læknarnir búa í eru svo mannmargar, að í þeim búa meira en helmingur landsmanna. Þannig eru allir kaupstaðir, kauptún og fjölbygð héruð komin undir ákvæði laganna, því læknar búa í þeim öllum. Með þessu fyrirkomulagi fengjum við með lítilli fyrirhöfn og litlum tilkostnaði nokkurn veginn áreiðanlegar skýrslur frá læknum, um fullan helming þeirra manna, sem deyja í landinu, og í þeim tilfellum, þar sem læknar eru ekki við, hafa prestarnir oftastnær skýrar skýrslur um dauðsföllin. Það er ekki Nd., sem stútað hefir þessu frv. áður, heldur var það Ed. og vona eg að háttv. þm. þessarar deildar lofi því að ganga greiðan gang gegnum deildina, því að það hefir nú loksins komist klaklaust gegnum Ed.