06.05.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í B-deild Alþingistíðinda. (2527)

Lausnarbeiðni forseta sameinaðs þings

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Af því þetta er afbrigði frá þingsköpunum, þá álít eg réttara að það sé borið undir atkvæði, hvort þingið vilji veita núverandi forseta lausn frá því starfi, og varaforseti stýri síðan forsetakosningu.