29.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 616 í B-deild Alþingistíðinda. (372)

21. mál, vígslubiskupar

Framsögumaður (Sig. Stefánsson):

Ástæðurnar fyrir frumv. þessu tók eg fram við 2. umræðu. Að eins skal eg geta þess, að nefndin hefir borið fram breytingartillögur eftir bendingu hæstv. ráðherra, en það eru að eins orðabreytingar, og hefi eg ekkert frekar um þær að segja, en vona að deildin samþykki þær, og svo frumv. í heild sinni.