08.05.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í B-deild Alþingistíðinda. (116)

111. mál, fjárlög 1912-1913

Steingr. Jónsson:

Eg ætla ekki að halda neina ræðu, að þessu sinni, heldur að eins lýsa yfir því, að flest það, sem hv. þm. Vestur-Ísfirðinga sagði í sambandi við Keflavíkurveginn, var annaðhvort tómur misskilningur eða algerlega rangt. Eins og eg hefi áður tekið fram hér í deildinni, þá álít eg 20,000 krónur fullkomlega nógu mikið fé til þess að ljúka þessum vegi algerlega.