06.05.1911
Sameinað þing: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 977 í B-deild Alþingistíðinda. (2733)

141. mál, einkaréttur landssjóðs á aðfluttum vörum

Ráðherra (Kr. J.):

Mér sýnast breytingartillögurnar ekki svo víðtækar, sem út lítur í fyrstu. Eg get tekið í sama strenginn og 3. konungkjörni þingm., að greinin eins og hún stendur í tillögunni sjálfri mætti vera óbreytt, en þá ætti peningamálanefndin að taka aftur tölulið 1. í breytingartillögunum, en láta hitt standa. Eg hefi ekkert á móti tölulið 2. Væri þetta gert, sé eg ekki annað, en að allir hlutaðeigendur og allir flokkar geti verið ánægðir.