14.08.1912
Efri deild: 24. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 410 í B-deild Alþingistíðinda. (426)

71. mál, kolatollur

Sigurður Eggerz (flm.):

Það er ekki nýtt, þótt háttv. þm. Ísf. sje illa sinnaður gagnvart þessu frumv. En jeg vona, að sú „taktik“, sem hann vill beita í þessu máli, komi ekki til greina. Það er forseti, sem hjer hefur valdið, og jeg endurtek það, að jeg vona, að hann taki frumv. ekki út af dagskrá. (Sigurður Stefánsson: Forseti getur skotið því til deildarinnar, hvort taka eigi málið út af dagsskrá.)