07.08.1915
Neðri deild: 27. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 911 í B-deild Alþingistíðinda. (1741)

88. mál, sjúkrasamlög

Sigurður Eggerz :

Jeg tel það ekki verjandi, að láta svo merkilegt mál, sem þetta, fara nefndarlaust gegn um deildina. Jeg álít ekki við eiga, að vísa því til sjávarútveganefndar nje landbúnaðarnefndar, enda hafa þær mjög mikið að gjöra. Jeg held fast við þá tillögu, að skipuð sje sjerstök nefnd í málið.