04.09.1915
Efri deild: 52. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í B-deild Alþingistíðinda. (7)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Framsögnmaður (Magn. Pjetursson) :

Jeg hefi ekki óskað að frv. verði skift við umræðuna, en ef háttv. þingdeildarmenn æskja þess, þá má mjer í ljettu rúmi liggja þó svo verði gjört, og vildi jeg þá mæla með að 13 fyrstu greinarnar verði fyrst teknar til umræðu.