27.12.1916
Neðri deild: 6. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 262 í B-deild Alþingistíðinda. (346)

13. mál, einkasala á steinolíu

Bjarni Jónsson:

Jeg vil leyfa mjer að leggja það til, að máli þessu verði vísað til fjárhagsnefndar, og óska jeg þess um leið, að háttv. flutnm. (J. B.) taki aftur þá till. sína, að kosin verði fimm manna nefnd, svo að ekki verði tillögurnar tvær.

Álít jeg, að mál þetta heyri undir það, sem fjárhagsnefndin á um að fjalla. Sömuleiðis er mjer kunnugt um, að nefnd sú hefir lítið að starfa.