08.01.1917
Neðri deild: 17. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 492 í B-deild Alþingistíðinda. (559)
32. mál, skipun bankastjórnar
Gísli Sveinsson:
Áður en jeg fer út í umræðurnar, vil jeg mælast til þess, að stjórnin svari fyrirspurnum þeim, því að fyrirspurnir má kalla það , þótt ekki hafi komið fram í því formi beinlínis, sem fram hafa komið frá 2 þm.
1. Hvort meiningin sje, að skipa ekki mann í bankastjórnina fyrst um sinn; og
2. hvort stjórnin muni ekki taka till. til greina, ef hún verður samþykt.