12.01.1917
Efri deild: 21. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 162 í B-deild Alþingistíðinda. (951)

43. mál, skipagöngur sameinaða gufuskipafélagsins

Ráðherra Sigurður Jónsson:

Það má segja um þetta mál sem önnur, að það er framkomið á síðustu stundu. Jeg ætla ekki að flytja langa ræðu. Að eins lýsa því yfir, að stjórninni er það áhugamál, að sameinaða gufuskipafjelagið breyti í engu frá samningunum, og mun því verða fylgt fram með festu af stjórnarinnar hálfu; hvort það verði rekið svo langt, að farið verði í mál, get jeg ekki sagt um að svo stöddu, en alt annað mun stjórnin leitast við að gjöra.