08.01.1917
Efri deild: 14. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 191 í B-deild Alþingistíðinda. (989)

Fastanefndir fylltar

Forseti:

Við forsetar deildanna höfum komið okkur saman um, að missist þingmaður úr fastanefnd, þá sje rjett, að þeir nefni annan í staðinn, sem kusu þann lista, sem sá stóð á, er frá fer.

Guðmundur Ólafsson, 2. þm. Húnv. var kosinn í landbúnaðarnefnd í einu hljóði.

Till. kom fram að í mentamálanefnd yrði kosinn Kristinn Daníelsson, 2. þm. G. K.