07.04.1921
Neðri deild: 37. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 237 í B-deild Alþingistíðinda. (468)

46. mál, vörutollur

Pjetur Ottesen:

Jeg hefði veigrað mjer við því að koma fram með þessa brtt., ef jeg hefði vitað, að út af henni mundi verða sá úlfaþytur hjer í háttv. deild, eins og nú hefir fram komið. En eftir því, sem fram hefir komið hjá háttv. fjhn., þá hefir hún talið sig samþ. efni till., en þótt niðurröðunin óviðfeldin. Getum við gert það nefndinni til geðs að taka aftur till. nú, svo að hún geti komið fram með brtt. til 3. umr.

Annars vil jeg skjóta því til nefndar innar, að mjer finst ekki síður ástæða fyrir hana að athuga niðurröðunina í stj.frv. sjálfu en í till. okkar, því að þar er sannarlega ekki minni ruglingur í niðuriöðun, eins og líka bent hefir verið á.