29.04.1921
Neðri deild: 58. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í B-deild Alþingistíðinda. (522)

23. mál, stofnun og slit hjúskapar

Forsætisráðherra (J. M.):

Þótt háttv. nefnd hafi ekki gert þær breytingar, er jeg mintist á við 1. umr. hjer í deildinni, þá verð jeg að segja, að jeg er mjög ánægður með meðferð þessa máls af hálfu Alþingis. Aðeins vildi jeg nota tækifærið, til þess að geta þess, að jeg vona, að háttv. nefnd taki hinum öðrum sifjamálafrv. eins vel og þessu.

En, sem sagt, að því er snertir frv. það, er hjer liggur fyrir, þá er jeg mjög ánægður með það, eins og það nú er.