24.04.1922
Sameinað þing: 12. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 426 í D-deild Alþingistíðinda. (2039)

90. mál, landsverslunin

Forseti (M. K.):

Það hefði óneitanlega verið gaman að senda nokkrar smákvittanir til nokkurra hv. þm., en jeg ætla að sýna þá sjálfsafneitun að falla samt frá orðinu, því jeg hefi enga tilhneigingu til þess að leggjast á náinn, eða að níðast á þeim, sem búnir eru að tala sig dauða. Mun þá heldur ekki verða sagt, að jeg misbeiti aðstöðu minni sem forseti.