08.04.1922
Efri deild: 40. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 581 í B-deild Alþingistíðinda. (590)

15. mál, útflutningsgjald

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Jeg vil ekki kannast við, að um neinn misskilning hafi verið að ræða hjá mjer, eins og hv. 2. þm. S.-M. hjelt fram. Háttv. þm. gat engar upplýsingar gefið mjer rjett fyrir fundarbyrjun, og þurfti honum því ekki að bregða kynlega við, þótt mjer kæmu þær nokkuð á óvart.

Hann tók og fram sjálfur, að þessar upplýsingar sínar væru ekki allskostar áreiðanlegar, og get jeg vel tekið undir það með honum. Get jeg því vel fyrirgefið honum, þótt hann gæfi mjer þær ekki áður en fundur byrjaði, því fullsannað virðist, að ekkert sje á þeim að byggja.