09.04.1923
Efri deild: 35. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 175 í C-deild Alþingistíðinda. (2054)

123. mál, skipun prestakalla

Flm. (Björn Kristjánsson):

Jeg skal geta þess út af ræðu hæstv. forsrh. (SE) að sóknarmönnum er kunnugt um, að hæstv. stjórn hefir í hyggju að setja mann í embættið, en þeir eru mjög óánægðir með þá ráðstöfun. Er það meðal annars af því, sem jeg hefi verið beðinn um að flytja þetta mál á þingi.