24.04.1923
Neðri deild: 49. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 885 í C-deild Alþingistíðinda. (2624)

67. mál, mannanöfn

Magnús Pjetursson:

Jeg vildi leyfa mjer að gefa þá skýringu, að frv. um lærða skólann kom fyrst til mentmn. 27. mars. Var hún um þær mundir orðin svo hlaðin störfum, að ekki var nein von til að það yrði afgreitt fyrst um sinn. Annars get jeg glatt hv. þm. Dala. (BJ) með því, að nefndin hefir nú klofnað um þetta mál, og mun sá hluti hennar, sem honum er sammála, leggja fram álit sitt nú næstu daga.