14.04.1923
Efri deild: 40. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 428 í B-deild Alþingistíðinda. (496)

18. mál, varnir gegn kynsjúkdómum

Jónas Jónsson:

Að jeg kom ekki með brtt. við 5. gr. er af því, að jeg get vel unt meiri hlutanum í þessari hv. deild, sem stendur hjer saman, að koma þessu í framkvæmd. En jeg get eflaust á næsta þingi sýnt fram á, hvað þessar viturlegu tillögur kosta landið.