11.05.1925
Neðri deild: 77. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1115 í B-deild Alþingistíðinda. (281)

1. mál, fjárlög 1926

Ásgeir Ásgeirsson:

Það er mjög óviðkunnanlegt, að smeygt sje inn svona till. á síðustu stundu, og svo kemur athugasemdin sjálf ekki fram í sjálfri brtt., heldur er aðeins til hennar vitnað, eins og til þess að alt fari frekar fram hjá mönnum. Vegna þess að barnakennarar eru í athugasemdinni undanskildir frá að njóta þessarar launabótar, þá vil jeg leyfa mjer að koma með viðbótartill. við síðari lið brtt. á þskj. 527.