05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 877 í C-deild Alþingistíðinda. (2418)

6. mál, lærði skólinn í Reykjavík

Jakob Möller:

Jeg sje enga ástæðu til þess að taka þetta mál af dagskrá, þó hæstv. forsrh. (JM) sje ekki viðstaddur þessa umr. Málið hefir verið rætt hjer svo oft áður, og svo held jeg, að hæstv. forsrh. (JM) muni hafa falið hv. 4. þm. Reykv. (MJ) málið algerlega á hendur, og ætti það að duga.