18.02.1926
Neðri deild: 9. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 908 í B-deild Alþingistíðinda. (396)

12. mál, kynbætur hesta

Atvinnumálarðherra (MG):

Jeg sje á nál. hv. nefndar og heyri á framsöguræðunni, að nefndin vill slaka til að nokkru frá ákvæðum frv., og að einu leyti vill hún herða á. En svo virðist, sem engin raunveruleg breyting muni á verða til 1930, ef brtt. hv. nefndar verða samþyktar, en eftir þann tíma mun verða hert á ákvæðum frv. Jeg get látið mjer lynda þessa meðferð málsins og þakka hjer með nefndinni fyrir fljóta afgreiðslu þess.