24.04.1929
Neðri deild: 53. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2329 í B-deild Alþingistíðinda. (1068)

47. mál, kosningar til Alþingis

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg stend aðeins upp til þess að bera blak af hv. 2. þm. Árn., því að mjer finst mjög ómaklegt, hvernig á hann hefir verið ráðist og dregið inn í umr., hvers vegna hann sje ekki viðstaddur. Get jeg upplýst, að það er ekki ófyrirsynju, þó að hann hafi ekki mætt á þessum fundi, því að eftir hálfa stund fer hann austur til sýslu sinnar til þess að halda sýslufund.