08.04.1930
Sameinað þing: 3. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í D-deild Alþingistíðinda. (3490)

153. mál, einkasala á steinolíu

Jón Jónsson:

Hv. aðalflm. hélt því fram, að grundvöllur till. minnar væri ótraustur. En honum láðist að koma með nokkuð, sem sýndi, að svo væri í raun og veru.

Stjórnin hefir því tvímælalaust heimild til þess að láta landið taka að sér þessa verzlun, hvenær sem hún telur það nauðsynlegt. Till. hefir því fyllsta rétt á sér, eins og ég tók áður fram.