10.04.1931
Neðri deild: 43. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 255 í C-deild Alþingistíðinda. (837)

5. mál, verðtollur

Pétur Ottesen:

Till. mín á þskj. 302 gengur miklu lengra en þessi brtt. 299,2.a., sem nú var samþ., og átti því samkv. þingsköpum að vera borin upp fyrst. Ég vil mótmæla þessari aðferð, og ef brtt. 302,1 verður felld, þá er það bara af því, að gengið hefir verið móti réttum reglum með því að bera tillögurnar þannig upp.