19.04.1932
Neðri deild: 55. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1785 í B-deild Alþingistíðinda. (1835)

35. mál, lækningaleyfi

Jón Auðunn Jónsson:

Hæstv. dómsmrh. þarf ekki að furða sig á því, þó að aðrir kunni að vera fúsari til þess að fara í meiðyrðamál heldur en hann, en hitt er ekkert undarlegt, þó að dómsmrh. þori ekki sjálfur í meiðyrðamál, af því að hann hefir alltaf svo vondan málstað.

Annars vil ég mælast til þess við hæstv. forseta, að hann sjái til þess, að dómsmrh. sé ekki alltaf að leika eins og ímyndunarveikur maður hér í þd.