19.03.1932
Efri deild: 33. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 840 í B-deild Alþingistíðinda. (396)

5. mál, verðtollur

Jón Baldvinsson:

Ég mun greiða atkv. á móti þessu frv. þegar við þessa fyrstu umr. Ástæðurnar fyrir þessari afstöðu minni til frv. eru hinar sömu og færðar voru fram af flokksbræðrum mínum í hv. Nd. við afgreiðslu málsins þar.