01.06.1933
Efri deild: 86. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2435 í B-deild Alþingistíðinda. (3853)

205. mál, ráðstafanir vegna viðskiptasamnings við bresku stjórnina

Frsm. (Magnús Torfason):

Ég vil aðeins leyfa mér að skýra frá því, að komið hefir brtt. í þessu máli, sem ekki er útbýtt enn hér í hv. d., og óska ég því, að frestað verði að taka málið fyrir, þangað til síðar á fundinum, þegar þskj. hefir verið útbýtt.