08.12.1933
Sameinað þing: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í D-deild Alþingistíðinda. (1512)

84. mál, áfengismálið

Vilmundur Jónsson:

Ég leyfi mér að víkja því enn til athugunar hæstv. forseta, að till. hv. 1. þm. Reykv. var lýst áður en hann gerði á henni þá breytingu, sem hann talar nú um. Og með leyfi að spyrja: Má bera fram till. og breyt. ekki eingöngu eftir að búið er að lýsa till., heldur líka eftir að búið er að slíta umr. Viðbót hv. þm. var aldrei lýst, og mér skilst, að ekki sé hægt að lýsa henni eftir þetta. Þess vegna getur till. hans ekki komið til atkv. öðruvísi en hún var, svo sem hún hljóðaði þegar henni var lýst, og þá sem sjálfstæð till., en ekki sem brtt. við mína till.