06.12.1933
Neðri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 262 í B-deild Alþingistíðinda. (233)

2. mál, kosningar til Alþingis

Bernharð Stefánsson:

Ég hefi mikinn hug á því að komast heim með þeirri ferð, sem nú fellur, en ég býst við, að það geti orðið, þótt atkvgr. dragist eitthvað. Annars er víst umr. um málið alls ekki slitið, og ég ætla því að nota tækifærið til þess að segja örfá orð um málið sjálft, ef það er leyfilegt.