04.12.1934
Neðri deild: 50. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1434 í B-deild Alþingistíðinda. (1156)

7. mál, gengisviðauki

Frsm. (Sigfús Jónsson):

Ég hefi ekki annað um þetta mál að segja en það, að n. hefir athugað frv. og leggur einróma til, að það verði samþ. Þetta mál mun hafa legið fyrir fyrri þingum, og fjhn. væntir þess, að það verði samþ., eins og hefir verið gert á undanförnum þingum.