05.12.1934
Efri deild: 53. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1935 í B-deild Alþingistíðinda. (2071)
73. mál, stjórn og starfræksla póst- og símamála
Frsm. (Páll Hermannsson):
Ég skal játa, að ég hafði eiginlega engu síður í huga till. á þskj. 637, sem hv. till.maður hefir nú tekið aftur. Það er satt, að till. á þskj. 663 er nokkuð á annan veg, og ég sé það, að þótt hún verði samþ., þá felst ekki í henni nein meining til póstmanna. En ég hugsa, að framkvæmdin geti varla orðið öðruvísi en hv. till.maður ætlast til, jafnvel þó að brtt. hans yrði ekki samþ.